16.8.2008 | 11:13
2 Ár....
Sællir strákar!
Þá eru komin 2 ár
síðan þið skilduð við okkur, og er en söknuðurinn jafn mikill.
Aldrei mun þessi dagur gleymast, það líður ekki dagur sem ég hugsa ekki til ykkar.
En ég hugsa bara um það góða, ég fékka að kynnast ykkur og það var bara gleði
og ekkert annað. Ég vona að þið hafið það gott og þið hlæið og sprellið saman. Það væri
ykkur líkt
Kær kveðja Kristín frænka
25.4.2008 | 14:38
Elsku Gummi....
Elsku Gummi...
Ég elska þig svo mikið . Váá hvað ég sakna þín það vantar svo mikið og ég bara sakna þín og langar að sjá þig í eigin persónu en ekki bara á mynd .... Það er svo mikið sem minnir á þig og stundum get ég ekki haldið tárunum inni í mér ..Þannig þá brest ég í grát.
í fermingunni minni voru allir svo glaðir og ég var það líka en samt vantaði svo mikið inn í þessa stóru fjölskyldu...þegar ég mun skoða fermingarmyndirnar verður þú ekki á myndunum ....
ég hlusta oft á lagið með miley cyrus sem heitir i miss you patur úr því er svona :
I Miss you.
i miss your smile
and i still shed a tear evry once in a while
and even thougt it is diffrent now
your still here somehow
my heart wont let you go
and i need you to know
i miss you
sa la la la
i miss you .......
Ég sakna þín alveg svakalega ég get ekki lýst því en ég elska þig geipveikt mikið..
þín litla systir....
23.11.2007 | 11:00
Hæjj Gummi,,,,
Hæjj Gummi,,,,
Ég vildi bara segja að það fer enginn dagur framhjá án þess að ég hugsa um þig .....
Alla daga hugsa ég til þín ,,en það er eitt sem ég á aldrei eftir að skilja, afhverju tók guð þig frá okkur öllum ,,,:'(ég sakna þín svo mikið að ég bara get ekki lýst því,,, núna fara bráðum að koma önnur jólin án þess að þú sért hjá okkur ,,, é elska þig :*
Litla systir :)
30.1.2007 | 09:25
Sætastir :)
Jæja strákar, þá er ég alveg að verða búin að ákveða hvernig hjól ég fæ mér. Nú hlærðu örugglega Jóhann, ættir að vita að ég skipti um skoðun oftar en ég veit ekki hvað. :p EN já og er líka búin að ákveða að fá mér annað tattú. Hehe kemur kannski ekki á óvart , búin að langa í annað alveg síðan ég fékk mér fyrsta :) Vantaði svo "bílaráð" í gær og hvert hringir maður þá ? Jú , annaðhvort í Hafstein frænda eða Jóhann....Hafsteinn svaraði ekki....hmmm..hann ætti nú ekkert að vera upptekinn þegar ég þarf á honum að halda. Hélt ég væri búin að kenna honum það nógu vel :) hehe
Jæja best að koma sér á æfingu, sakna ykkar meir en orð fá lýst. Gummi minn ég skal sjá um að stríða litlu systu ;) Ekki málið :)
Ykkar frænka, Jóna Ósk
12.1.2007 | 23:48
Elsku Gummi
Elsku stóri bróðir
ég vildi að þú værir hérna ég sakna þin svo mikið.það vantaði svo mikið um jólin að ég get ekki lýst því það vantaði bara Gumma stíl..
ooo hvað ég vildi að þú værir herna.Um áramótin var enginn sem var að stríða mér með inni sprengjum eða inni bobum.....það bara vantaði svo mikið svo vantaði mer lika .ig svo ég gæti strítt þér á fullu
en nuna er enginn sem borðar nammið mitt þegar ég skil það eftir á borðinu eða eihvað að fíflast í mér
ég sakna þín svo mikið og elska þig af öllu hjarta... ég veit eginlega ekki hvernig afmælið mitt verður án þín eða fermingin mín það verður enginn gumma still eða gummi bróðir![]()
ég verð vist bara a trúa að við munum hittast aftur...en ég sé þig kannski seinna einhverntiman ...Kveðja elsku litla systir þín
Kristín Sigurbjörg![]()
16.11.2006 | 12:47
Vildi að þið væruð hér....
Sjaldan hef ég óskað mér neins eins mikið og að fá ykkur aftur. Heyra ykkur hlægja og gera grín. Eins og þið gerðuð svo oft. Minningarnar flæða um hugann og stundum fæ ég hláturskast uppúr þurru þegar ég hugsa um allar góðu minningarnar. Elsku frændur , sakna ykkar endalaust og elska ykkur svo mikið.
Ykkar frænka ,
Jóna Ósk ![]()
11.10.2006 | 05:34
Orðlaus..
Elsku bróðir minn hefðir orðið 22 ára í dag. Dagur sem hann hefði átt að fá að eiga, gullfallegur maður á besta aldri með allt lífið framundan.
Ekki hafa nú verið mikil samskipti okkar í gegnum árin, en alltaf fékk hann sms frá mér, bara svo hann vissi að ég væri til staðar, væri ekki búin að gleyma honum....ég beið alltaf eftir deginum sem hann væri orðinn það gamall að við mundum ná saman.
Ég get þó sætt mig við það að ég reyndi, og ég lét hann vita að ég elskaði hann.
Ég man svo vel eftir deginum sem hann fæddist.
Ég var hjá afa mínum þegar pabbi hringir og segir að ég sé búin að eignast bróðir, ég varð alveg rosalega vonsvikin og sagðist nú hafa viljað fá systir og var afar sár. Hehe, fannst alveg nóg að hafa 2 bræður. En að skipta honum kom sko ekki til greina þegar heim var komið, mér fannst hann æði.
Elsku Gummi, ég vona að þú sért á góðum stað og fáir almennilegt afmæli, hef aldrei verið trúuð, ég bara verð að trúa á eitthvað líf eftir dauðann og að við hittumst þá.
Eva
4.9.2006 | 23:27
Endalaus söknuður !
Elsku strákarnir mínir ! Sakna ykkar endalaust og get ekki hætt að hugsa um ykkur !
Ykkar frænka ,
Jóna Ósk
28.8.2006 | 21:56
Brostin hjörtu...
Elsku falllegi strákurinn minn !
Mér finnst svo stutt síðan ég passaði þig. Manstu síðustu áramót þegar þú og Helgi "svindluðuð" og fóruð á ball kvöldið fyrir gamlárs. Þú varst svo þreyttur á gamlárs að þú rétt gast haldið þér vakandi á meðan við borðuðum. Eða þegar ég og Njóla komum heim til mömmu þinnar og pabba og plöstuðum rúmið þeirra. Þú varst svo hissa , ætliði að plasta svefnstaðinn minn , sagðir þú við okkur alveg gáttaður. Elsku Gummi minn, ég gleymi þér aldrei. Næstu áramót verða skrýtin, enginn Gummi til að stríða.
Hvíldu í friði elsku vinur, ég veit þér líður vel.
Þín frænka,
Jóna Ósk
26.8.2006 | 19:40
Þetta er þá satt....
Ég horfði á kistuna síga niður.... þetta er þá satt. Elsku Jóhann minn, þetta var þá ekki draumur eftir allt saman.
Það sem ég sakna þín. Sakna að heyra rödd þína og hláturinn þinn. Þegar ég eignast fyrsta hjólið mitt þá ferðu með mér í fyrstu ferðina.
Er ég græt, þerraðu tár mín
Er ég brosi, fylltu hjarta mitt af gleði
Vaktu yfir mér og vertu með mér í dag og alla daga
Þín frænka,
Jóna Ósk
Um bloggið
Minningarsíða Guðmundar Adams og Jóhanns Fannars
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 20603
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



